Persónuvernd

Persónuverndarstefna tvix

TVIX leggur ríka áherslu á persónuvernd og vill að viðskiptavinir, notendur og gestir vefsíðunnar viti hvernig persónuupplýsingum er safnað, unnið, vistað og miðlað, hvort sem upplýsingarnar eru geymdar rafrænt, á pappír eða með öðrum hætti.

TVIX virðir rétt einstaklinga til einkalífs og tryggir að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs, þar á meðal lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga (GDPR).

 

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við?

Við söfnum einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna reksturs vefverslunarinnar, svo sem:

  • Nafn

  • Kennitala (ef við á)

  • Heimilisfang

  • Netfang

  • Símanúmer

  • Greiðsluupplýsingar

  • IP-tala og tæknilegar upplýsingar

  • Upplýsingar um pantanir og viðskipti

Við söfnum ekki viðkvæmum persónuupplýsingum nema lög krefjist þess.

 

Hvernig söfnum við upplýsingum?

  • Þegar þú skráir þig eða leggur inn pöntun

  • Þegar þú hefur samband við okkur

  • Með notkun vafrakaka (cookies)

  • Í tengslum við greiðslur og útgáfu reikninga

Í hvaða tilgangi vinnum við gögn?

Persónuupplýsingar eru unnar til að:

• Afgreiða pantanir og greiðslur.

• Veita þjónustu, svara fyrirspurnum og hafa samband vegna pantana.

• Uppfylla lagaskyldur, svo sem bókhaldsskilyrði.

• Senda þér upplýsingar sem þú hefur samþykkt að fá, svo sem fréttabréf og tilboð.

• Bæta vefsíðuna og auka notendaupplifun.

Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú vinnslu persónuupplýsinga í þessum tilgangi. Þú hefur rétt til að draga samþykki til baka hvenær sem er, til dæmis ef þú villt ekki fá markaðsefni.

 

Hver á aðgang að upplýsingum?

 

TVIX deilir persónuupplýsingum aðeins með þeim aðilum sem nauðsynlegt er til að veita þjónustu, svo sem flutningsaðilum, greiðsluaðilum eða tæknilausnum sem starfa fyrir okkar reikning. Slíkir aðilar starfa undir samningi sem tryggir að gögn séu unnin í samræmi við GDPR og erum við ábyrg fyrir vinnslu þeirra samkvæmt leiðbeiningum okkar.

Persónuupplýsingar eru ekki seldar til þriðja aðila í viðskiptalegum tilgangi.

If the item wasn’t marked as a gift when purchased, or the gift giver had the order shipped to themselves to give to you later, we will send a refund to the gift giver and they will find out about your return.

 

Öryggi og varðveisla

Við tökum í notkun viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, glötun eða misnotkun. Gögnum er haldið áfram svo lengi sem nauðsyn krefur vegna þjónustu, samninga og lagaskyldna.

Ef öryggisbrestur sem gæti haft áhrif á upplýsingar þínar á sér stað munum við tilkynna það til viðeigandi eftirlitsaðila og til þín ef lög krefjast þess.

 

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

• Fá aðgang að eigin persónuupplýsingum.

• Krefjast leiðréttingar rangra upplýsinga.

• Óska eftir eyðingu gagna þegar lög leyfa.

• Andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum eða samþykki þínu.

• Fá flutt gögn sem þú hefur sjálf(ur) veitt í hagnýtum formi.

Fyrirspurnir varðandi persónuupplýsingar eða úrvinnslu þeirra má senda á netfang tvix@tvix.is

Shopping Cart0

No products in the cart.