1. Viðskiptaskilmálar TVIX
Þessir viðskiptaskilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu frá TVIX í gegnum vefverslunina. Með því að nota vefsíðuna og leggja inn pöntun samþykkir þú skilmála þessa.
TVIX áskilur sér rétt til að uppfæra skilmálana hvenær sem er. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðunni.
2. Upplýsingar um seljanda
Seljandi er TVIX ehf., rekstraraðili vefverslunarinnar TVIX. Fyrirtækið starfar eingöngu sem netverslun og hefur ekki opnunartíma né móttöku fyrir viðskiptavini á staðnum.
3. Pantanir og samningsgerð
Samningur telst kominn á þegar þú færð staðfestingu á pöntun með tölvupósti. TVIX áskilur sér rétt til að hafna pöntunum ef upplýsingar eru rangar, vara er ekki til á lager eða verð er rangt birt vegna tæknilegra mistaka.
Ef vara er uppseld eða ekki fáanleg verður haft samband og boðið upp á endurgreiðslu eða aðra lausn.
4. Verð og greiðslumáta
Öll verð í vefverslun TVIX eru birt í íslenskum krónum og eru með 24% virðisaukaskatti (VSK), nema annað sé sérstaklega tekið fram.
TVIX áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara, til dæmis vegna innsláttarvilla, tæknilegra mistaka eða breytinga frá birgjum. Ef rangt verð birtist á vöru áskilur TVIX sér rétt til að leiðrétta það og hafa samband við kaupanda áður en pöntun er afgreidd.
Í vefverslun TVIX er hægt að greiða með greiðslukortum í gegnum örugga og dulkóðaða greiðslugátt.
Við tökum við kortum frá Visa og Mastercard í gegnum íslenskar greiðslugáttir. Einnig er boðið upp á greiðslu með Netgíró.
Greiðsluupplýsingar eru sendar með öruggri SSL-dulkóðun og eru ekki vistaðar hjá TVIX.
5. Afhending og sendingar
Afhendingartími fer eftir lagerstöðu og valinni sendingarleið. TVIX leitast við að senda pantanir eins fljótt og auðið er.
TVIX ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til flutningsaðila eða atvika sem eru utan okkar stjórnunar, svo sem veðurs eða ófyrirsjáanlegra aðstæðna.
6. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Samkvæmt lögum um neytendakaup hefur kaupandi rétt á að falla frá kaupum innan 14 daga frá afhendingu vöru, án þess að tilgreina ástæðu.
Fresturinn hefst þann dag sem varan er afhent skráðum viðtakanda.
Til að réttur til endurgreiðslu gildi þurfa eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt: varan skal vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í söluhæfu ástandi. Upprunalegar umbúðir skulu fylgja og vera óskemmdar. Afrit af greiðslukvittun eða pöntunarstaðfestingu þarf að fylgja með.
Ef skilyrði eru uppfyllt verður kaupverð endurgreitt innan 14 daga frá móttöku og yfirferð skilavöru. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup, nema annað sé sérstaklega samið um.
Kaupandi ber kostnað af endursendingu nema vara sé gölluð eða ranglega afgreidd.
Framkvæmd skilanna
Skil skulu framkvæmd í gegnum viðurkenndan sendingaraðila. Hægt er að skila vöru með Dropp eða Pósturinn.
Kaupandi ber ábyrgð á að varan sé send á öruggan hátt og mælt er með að velja sendingarleið með rekjanleika.
Nánari upplýsingar um skilaleiðir má finna á heimasíðum viðkomandi sendingaraðila:
https://dropp.is/voruskil
https://posturinn.is
7. Gölluð vara
Ef vara reynist gölluð eða skemmd skal hafa samband við TVIX eins fljótt og auðið er. Farið er með kvartanir samkvæmt lögum um neytendakaup.
Viðskiptavinur kann að eiga rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu eftir atvikum.
8. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar
TVIX ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, tekjutapi eða afleiddu tjóni sem kann að hljótast af notkun vöru, nema skylt sé samkvæmt lögum.
Ábyrgð takmarkast við kaupverð viðkomandi vöru nema annað leiði af lögum.
9. Persónuvernd
Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt Persónuverndar– og vafrakökustefnu TVIX sem birt er á vefsíðunni.
10. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða dómstóla á Íslandi.

