Þú velur vöru, bætir henni í körfu og fylgir leiðbeiningum á kassanum til að ljúka pöntun.
Þegar gengið er frá pöntun þá birtast mögulegir afhendingarmátar út frá þinni staðsetningu, eftir að þú fyllir út heimilisfang. Sendingarkostnaðurinn fer eftir þyngd og póstnúmeri.
Við afhendum svo vörur með Dropp eða Póstinum um land allt.
Að jafnaði sendum við frá okkur vörur samdægurs á virkum dögum eða næsta virka dag, eftir því hvenær pöntun berst okkur. Við sendum þér póst þegar við höfum tekið saman pöntunina þína fyrir afhendingu til flutningsaðila.
Þjónusta flutningsaðila er svo allt frá því að afhenda vörur samdægurs og upp í 2-4 virka daga. Það veltur á hvaða þjónusta er valin og hvar á landinu vöruafhending á að fara fram. Á álagspunktum í kringum stóra verslunardaga getur þjónusta flutningsaðila dregist örlítið.
Almennt gildir að skilafrestur er 14 dagar. Pakkaðu vörunni í upprunalegar umbúðir og sendu hana með sendingaraðila að eigin vali.
Eftir að þú hefur skráð endursendinguna þína biðjum við þig vinsamlegast um að senda okkur tölvupóst á tvix@tvix.is með pöntunarnúmerinu þínu og láta vita hvort þú viljir skila eða skipta. Ef um skipti er að ræða, vinsamlegast nefndu hvaða vöru þú vilt fá í staðinn svo við getum tekið hana frá fyrir þig. Varan þarf að vera í sama ástandi og hún var keypt og allir miðar að fylgja.
(Athugaðu að sendingartími skila er mismunandi eftir staðsetningu. Dropp sækir pakka oftast einu sinni í viku ef þú ert utan höfuðborgarsvæðisins, sem getur lengt afhendingartíma upp í 10–14 daga.)
Við munum láta þig vita um stöðu endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá því að við móttekkum vöruna.
Sendu okkur tölvupóst á tvix@tvix.is og við finnum út hvort þú viljir fá nýja vöru, skipta í aðra vöru, eða endurgreiðslu.
Almennt gildir að skilafrestur er 14 dagar og er hægt að skipta í aðra vöru, eða fá endurgreitt. Skilafrestur byrjar að telja þegar vara hefur verið afhent til viðskiptavinar. Nánar má lesa um skilmála vöruskila hér
Heimilisfang sendingar er valið við frágang körfu. Ef einhver breyting verður eftir að búið er að senda inn pöntun er alltaf hægt að hringja eða senda tölvupóst þangað til sendingin er farin frá okkur.
Sendu okkur línu og við svörum fljótlega.